Skrefin 7 til velsældar
Þeir sem ástunda Ropeyoga og Glómotion fylgja eftir hvetjandi sjö þrepa kerfi, sem vekur þá til umhugsunar. Hér er stiklað á stóru um skrefin sjö.
1. þrep - AÐ VAKNA TIL VITUNDAR
Hvaða lærðu venjur hefur þú búið til, meðvitað eða ómeðvitað, þegar kemur að hugsunum, tilfinningum eða gjörðum? Hvaða hugmyndir hefur þú um sjálfan þig, um aðra eða um heiminn? Bara það að vera meðvitaður um hver þú ert, hugmyndir þínar eða venjur er sannarlega gott upphaf. Ef við erum ekki vakandi, þá getum við ekki valið viðbragð, heldur einungis brugðist við á tiltekinn hátt. Aðeins þeir sem eru vakandi eiga möguleika á að velja viðeigandi viðbrögð.
2. þrep - AÐ VERA ÁBYRG(UR)
Það er mikilvægt að vita hvernig maður á að bregðast við. Þegar þú velur viðbragð þá gerirðu það ekki lengur af áráttu eða af gömlum vana. Í staðinn ertu fær um að skipuleggja eigin hugsanir og stýra orku þinni í réttan farveg. Þú getur haft áhrif á framtíð þína og þrár. Taktu fulla ábyrgð á sjálfri þér/sjálfum þér og vertu skapari þinna eigin örlaga.
3. þrep - ÁSETNINGUR ÞINN
Fyrst verðum við að ákveða hvað við viljum og ágirnumst og síðan að setja okkur markmið sem við trúum á af heilindum. Ímyndaðu þér markmið þín í huganum, til síðasta smáatriðis, eins og þeim hafi þegar verið náð. Þannig skapar þú þína eigin framtíð; með ásetningi og tilgangi. Þegar þú kemur skipulagi á eigin hugsanir og beinir þeim í ákveðinn farveg, þá ertu að velja viðbragð og taka ábyrgð. Þú ert Skaparinn.
4. þrep - TRÚFESTA
Um leið og við einbeitum okkur algerlega að ætlunarverkinu höfum við gert samning við hið heilaga. Á því augnabliki tekur alheimurinn okkur alvarlega og byrjar að vinna með okkur. Þegar þú lofar einhverju þá ertu ekki aðeins að skuldbinda sjálfan þig og aðra, heldur einnig að tengjast því heilaga, sameinast eigin orkulindum og bæta tengingu þína við alla þá sem þú átt samskipti við.
5. þrep - AÐ LEYFA FRAMGANG
Skuldbinding þín endurspeglast í aðgerðum þínum, sem er fimmta þrepið. Daglegar gjörðir auka skuldbindinguna og færa þig nær settum markmiðum. Markmið þín og ásetningur eru vegvísar þínir. Þú þarft að sjálfsögðu að halda réttri stefnu og aðlaga þig að mismunandi aðstæðum á ferðalaginu. Með því að vera hjálpleg erum við um leið verðug og móttækileg. Þannig er hringrás uppljómunar og sköpunar tryggð. Fylltu líf þitt og annarra með orku, örlæti, góðmennsku og samúð.
6. þrep - INNSÆI
Svo framarlega sem þú staðfestir og endurtekur bæði skuldbindingar þínar og ásetning, þá skaparðu aðstæður og tækifæri sem hjálpa þér að vaxa og læra. Þegar þú ferð í gegnum fyrstu fimm þrepin getur verið að innsæi birtist þér í ýmsum myndum sem hafa áhrif á markmið þín og aðgerðir. Ekki hafna þessum tilfinningum, heldur taktu þeim opnum örmum. Með þessu móti færðu tækifæri til sjálfsskoðunar en hafnar um leið bælingu og sjálfsafneitun þegar á móti blæs. Þú þarft ekki lengur að veita viðnáminu viðnám.
7. þrep - ÞAKKLÆTI
Þegar við lifum í sífelldu þakklæti og njótum okkar sjálfs, óháð öðru eða öðrum, þá erum við uppljómuð. Þetta sjöunda og síðasta þrep er því takmark okkar allra. Að vera uppljómaður þýðir í raun að þú ert ljósið, hinn heilagi guðlegi kjarni sköpunarinnar. Með þá vitneskju lifir þú í augnablikinu og lætur ljós þitt skína jafnt og óháð því sem þú kemur nálægt.