..............................

U M S A G N I R . . .

Eftir að ég byrjaði að stunda Rope Yoga hefur ýmislegt jákvætt gerst. Ég er öll miklu sterkari, liðugri og líður betur í kroppnum. Maður fer að vinna betur og betur úr hverri æfingu og læra meira um hvernig hægt er að nýta þær. Ég er miklu meðvitaðri um hvernig ég ber mig og vöðvabólgur eru liðin tíð. Ég reyni að sleppa aldrei úr tíma því mér finnst Rope Yoga gefa mér kraft til að takast á við hin ýmsu verkefni hversdagsins.

Hildur Helgadóttir hjúkrunarforstjóri
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
 

 Lesa meira

 ..............................

Smelltu hér til að versla RopeYoga vörur...

 Heim    Prenta    Hafa samband    

Lífsráðgjafinn-Helgarnámskeið

    

Þjálfun í
 
 að lifa lífinu til fulls.
 
Yfirlýsing um ásetning!
Framtíðin skipulögð!
Skilgreind aðgerðaþrep!
 
 
Hvaða þýðingu hefur lífið í þínum huga?
Hvaða hlutverki ætlar þú að gegna?
 
 
Þráin er fræ sköpunarinnar. Ef þú ert tilbúinn að axla ábyrgð, veldu þér þá tilgang og leggðu niður fyrir þér hvernig þú skapar framtíðina. Þetta kver er hannað til að flýta fyrir skilningi þínum og getu og til að hvetja þig á umhyggjusaman hátt í átt að framtíð þar sem árangur næst hvert andartak. Þú getur upplifað velmegun, átt auðugt líf, í sátt og samlyndi. Þú getur lifað lífinu til fulls!
 
Kynning
 
Lífsráðgjafinn er verkfæri þróað af Guðna Gunnarsyni og er ætlað að leiða þig í gegnum ferli þess að uppgötva, ákveða og lýsa yfir tilgangi þínum, ásamt vel skilgreindum áformum sem þú heitir sjálfum/sjálfri  þér að fylgja. Þetta verkfæri gerir þér kleift að vakna til lífsins og uppfylla drauma þína með því að setja þér markmið. Þessi markmið geta af sér sérstakan, mælanlegan og framkvæmanlegan árangur eftir ákveðinn tíma. Með þessu verkfæri tengir þú  hjarta við huga til að skrá hugsanir, orð og gerðir sem geta af sér ástríðu, eldmóð og þau tilfinningalegu áhrif sem þarf til að fylla líf þitt allsnægtum og velsæld.
 
Lífsráðgjafinn gerir þér kleift að spyrja mikilvægra spurninga um sjálfa(n) þig, aðstæður þínar og þrár. Það breytir viðhorfi þínu þannig að meira  rúm verður fyrir einbeittara val sem byggir á því að vera í ,,núinu”, í hugsun og ígrundun. Mælt er með gerð lista yfir möguleika sem leiða af sér velgengni og gnægð. Þannig verður þér kennt valdið sem felst í ákvarðanatöku. Þér er einnig leiðbeint framhjá óákveðni með því að læra að einbeita þér að ákvarðanatökunni og þannig eykst skilningur á því hvað til þarf til að ná þeirri niðurstöðu sem þú hefur meðvitað valið að þú og samferðarmenn þínir hafið hag af.
 
Við viljum að þú  sjáir að ásetningur er grundvallaratriði í skilningi á ,, tilgangi lífsins.” Þegar þú hefur ákveðið tilgang lífs þíns verður allt annað ljóst. Að finna hver áformin eru, er spurning um skilgreiningar og val. Alheimstilgangur  mannkynsins er að uppgötva frjálsan vilja, hæfileikann að velja. Það er hugurinn sem ákveður hver ásetningur þinn er, hvort sem hann er hversdagslegur eða dulrænn. Þú ert skaparinn. Þú er sá/sú sem ákvarðar raunveruleikann í eigin lífi. Hvort sem þú beinir athyglinni að ánægju eða sársauka, velgengni eða örvæntingu, er valið þitt og það ert þú sem á endanum ert ábyrg(ur) fyrir útkomu lífs þíns.
 
Með skýrum ásetningi getur þú haldið áfram þeirri sköpun sem þú vilt í lífi þínu. Með því að veita einhverju athygli, er vöxtur þess örvaður. Sólskin örvar bæði falleg blóm og óæskilegt illgresi þannig að það er lykilatriði hvert þú beinir athyglinni. Með því að einsetja þér að skapa framtíð með meðvituðu og vísvitandi vali, með því að einbeita þér að ferðinni, ekki áfangastaðnum, en muna samt hvert ferðinni er heitið, ert þú ábyrgur skapari velgengni og allsnægta.

Skráning og nánari upplýsingar: http://ropeyogasetrid.is/index.php?page_id=35&course_id=19

Verð námskeiðs ásamt námsgögnum samtals Krónur 34.900.-

Fullnaðargreiðsla fari fram 10 dögum áður en að námskeiði kemur og verða þá afhent námsgögn sem ætlast er til að þátttakendur séu búnir að fara yfir áður en námskeið hefst.

Dagskrá.:
Föstudagur   11 maí kl. 19-21 opnun námskeiðs.
Laugardagur 12 maí kl. 08-17 námskeið.
Sunnudagur  13 maí kl. 08-17 námskeið.

    


PÓSTLISTASKRÁNING

Skrá

Afskrá
 


Smelltu hér að neðan  til að skoða vefslóðir vina og samstarfs-aðilla Rope Yoga...

» Rope Yoga Setrið

» Elín Sigurðardóttir
» Hreysti
» Græni Hlekkurinn
» Þorvaldur Þorsteins.
» World Class
» Dansrækt JSB
» Fully Alive Coaching
» Kennsla.is

» Heilsuhöndinn

» Veitingahúsið Gló





 Hvað gerir RopeYoga?

 • Eflir brennslu og flæði.
 • Þróar grunnstyrk
   kviðarvöðva.
 • Eykur orku.
 • Eykur blóðflæði í kvið.
 • Eykur súrefnisupptöku.
 • Eykur upptöku
   næringarefna.
 • Eflir úrgangslosun.
 • Eykur liðleika.

 

 

    

www.hreysti.is | www.ropeyogasetrid.is | www.ropeyoga.com | www.glo.is | www.glomotion.com | gg@ropeyoga.com