..............................

U M S A G N I R . . .

Eftir að ég byrjaði að stunda Rope Yoga hefur ýmislegt jákvætt gerst. Ég er öll miklu sterkari, liðugri og líður betur í kroppnum. Maður fer að vinna betur og betur úr hverri æfingu og læra meira um hvernig hægt er að nýta þær. Ég er miklu meðvitaðri um hvernig ég ber mig og vöðvabólgur eru liðin tíð. Ég reyni að sleppa aldrei úr tíma því mér finnst Rope Yoga gefa mér kraft til að takast á við hin ýmsu verkefni hversdagsins.

Hildur Helgadóttir hjúkrunarforstjóri
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
 

 Lesa meira

 ..............................

Smelltu hér til að versla RopeYoga vörur...

 Heim    Prenta    Hafa samband    

K e n n a r a n á m s k e i ð

Fyrri hluti ROPE YOGA kennaranámskeiðs var haldið dagana 12 apríl til 15 apríl. Framhaldsnámskeið síðan dagana 31 ágúst til 2 september. Leiðbeinandi er Guðni Gunnarsson stofnandi ROPE YOGA.
 
Rope Yoga kerfið er kjörið tækifæri fyrir jóga kennara, sjúkraþjálfara, líkamsræktar þjálfara og þá sem hafa menntun í íþróttafræðum til að auka gildi núverandi þjónustu með Rope Yoga hug og heilsuræktarkerfinu.
 
''Það sem snerti hjarta mitt mest var hlýjan og umhyggjan sem blasti við mér frá Guðna og kennurum hans. Mikil fagmennska, gott skipulag. Mér fannst ég svo velkomin, andrúmsloftið svo gott, og svo mikil eining og hlýja. Þetta er það sem skiptir mig mestu máli''. Sigríður Guðjohnsen.
 
Rope Yoga er kerfi vellíðunar og þjálfunar sem tekur beint á gagnkvæmum tengslum líkama og hugar. Hugsanir og gjörðir falla saman við heimspeki og iðkun til að skapa verundarástand sem eflir lífsfyllingu og hamingju. Að sama skapi þá sameinar Rope Yoga öndun, hreyfingu og hugsun. Þessi sameining öndunar og hreyfingar hefur þrek og heilsu upp í nýjar hæðir og iðkendur sjá sjálfa sig í nýju ljósi og öðlast þar af leiðandi mátt til að skapa nýjan og gjöfulan veruleika.
 
Rope Yoga er einfalt og öflugt kerfi sem stuðlar að heilbrigðu lífi. Við nefnum það aðgæsluhreysti; ástand dýpri vellíðunar, betri árangurs og gnóttar sem leiðir til lifandi lífs (að lifa lífinu lifandi).
 
Gerðar eru kröfur um að þeir sem sækja námskeiðið hafi haldgóða þekkingu á sviði heilsuræktar, hafi kennt eða ástundað yoga, réttindi á sviði sjúkraþjálfunuar, einkaþjálfunar og/ eða íþróttakennslu.
 
Námskeiðið er haldið í Reykjavík og fer fram í tveimur hlutum.
Fyrsti hluti er fjórir dagar og er haldið dagana 12 apríl til 16 apríl. Kennd verða undirstöðuatriði Rope Yoga, tækni og heimspeki.
 
Seinni hluti fer fram daganna 31 ágúst til 2 september. og munu þátttakendur skila heimavinnu, sýna kunnáttu og væntanlega útskrifast sem Rope Yoga kennarar.
 
Nánari dagskrá ásamt staðsetningu kynnt síðar.
Verð námskeiðs og framhaldsnámskeiðs ásamt námsgögnum samtals Krónur 89.900.-
 
Fullnaðargreiðsla fari fram að lágmarki 3 dögum áður en að námskeiðið kemur og verða þá afhent námsgögn sem ætlast er til að þátttakendur séu búnir að fara yfir áður en námskeið hefst.
 
Dagar og tímatafla:
Fimmtudagur 12.4 19-21 opnun námskeiðs.
Föstudagur  13.4 kl. 08-17 námskeið.
Laugardagur 14.4 kl. 08-17 námskeið.
Sunnudagur 15.4 kl. 08-17 námskeið.
 
Virðingarfyllst,
Þórhallur K. Jónsson
Nánari upplýsingar í Hreysti, Skeifunni 19 Sími: 568-1717
 
 

PÓSTLISTASKRÁNING

Skrá

Afskrá
 


Smelltu hér að neðan  til að skoða vefslóðir vina og samstarfs-aðilla Rope Yoga...

» Rope Yoga Setrið

» Elín Sigurðardóttir
» Hreysti
» Græni Hlekkurinn
» Þorvaldur Þorsteins.
» World Class
» Dansrækt JSB
» Fully Alive Coaching
» Kennsla.is

» Heilsuhöndinn

» Veitingahúsið Gló





 Hvað gerir RopeYoga?

 • Eflir brennslu og flæði.
 • Þróar grunnstyrk
   kviðarvöðva.
 • Eykur orku.
 • Eykur blóðflæði í kvið.
 • Eykur súrefnisupptöku.
 • Eykur upptöku
   næringarefna.
 • Eflir úrgangslosun.
 • Eykur liðleika.

 

 

    

www.hreysti.is | www.ropeyogasetrid.is | www.ropeyoga.com | www.glo.is | www.glomotion.com | gg@ropeyoga.com