..............................

U M S A G N I R . . .

Eftir að ég byrjaði að stunda Rope Yoga hefur ýmislegt jákvætt gerst. Ég er öll miklu sterkari, liðugri og líður betur í kroppnum. Maður fer að vinna betur og betur úr hverri æfingu og læra meira um hvernig hægt er að nýta þær. Ég er miklu meðvitaðri um hvernig ég ber mig og vöðvabólgur eru liðin tíð. Ég reyni að sleppa aldrei úr tíma því mér finnst Rope Yoga gefa mér kraft til að takast á við hin ýmsu verkefni hversdagsins.

Hildur Helgadóttir hjúkrunarforstjóri
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
 

 Lesa meira

 ..............................

Smelltu hér til að versla RopeYoga vörur...

 Heim    Prenta    Hafa samband    

U m s a g n i r

Umsögn um Guðna Gunnarsson og Rope Yoga

Kristinn Þórðarson,
Kvikmyndagerðamaður

Það eru ekki nema örfáir einstaklingar sem við kynnumst í lífinu -- einstaklingar sem hafa svo djúpstæð áhrif á okkur og breyta viðhorfum okkar svo mikið til betri vegar, að aldrei verður aftur snúið. Guðni er einn þessara einstaklinga sem ég hef átt því láni að fagna að kynnast í lífinu, og hef ég notið góðs af líkams- og heilsuræktarkerfi hans “Ropeyoga”.

Persónulega hef ég aldrei kynnst neinu í líkingu við þetta æfingakerfi, aðallega vegna þess að því sameinar Guðni austurlenska heimspeki við mjög áhrifamikla og nærgætna líkamsþjálfun sem fólk á öllum aldri getur stundað.  Hann ögrar okkur svo að við náum árangri á uppbyggjandi hátt og slær stanslaust fram nýjum hugmyndum sem tengjast líkamlegu, andlegu og tilfinningalegu lífi okkar.  Á þann hátt hjálpar hann okkur að losna undan gömlum og úrsér gengnum viðhorfum, því eftir ástundun í Ropeyoga þá hætta þau að skipta okkur máli eða hafa merkingu.  

Sjálfur var ég einsog margur íslendingurinn, talaði stanslaust um að æfa og að koma mér í form, en minna varð úr verki.  Um leið og ég kynntist Ropeyoga æfingarkerfinu þá breytist allt mitt líf, það varð alger umbylting, sem skilaði sér í því að ég komst aftur í kjörþyngd mína og styrkist á líkama og sál.  Í fyrsta sinn fór ég að njóta lífsins fyrir alvöru.

 

Pétur Sigurðsson
Kvikmyndagerðarmaður

Ég man þegar ég fór fyrst í böndin, það var árið 1984 þegar Guðni var með Vaxtarræktina í Dugguvoginum.  Mér leist nú ekki meira en svo á þetta; voru þetta ekki bara einhverjar kerlingaæfingar, en þegar ég var farinn að gera æfingarnar þá breyttist skoðun mín fljótt; þetta var þrælerfitt og mjög áhrifaríkt. 

Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar.  Guðni er búinn að þróa bandakerfið mikið og búa til heilan helling af æfingum sem styrkja og þjálfa flesta vöðva líkamans og ef þú gerir þetta eftir uppskrift Guðna, þá er vöðvinn í kollinum líka meðtalinn. 

Aðal áherslan er þó lögð á miðjuna eða kviðinn og mín reynsla hefur sýnt mér að þegar kviðurinn er í góðu formi þá er eins og flest annað fylgi, staða manns breytist, bakverkir hverfa og maður er sáttur við buxnastærðina.  Það besta sem ég geri þegar ég finn fyrir bakverkjum er að fara í böndin. Þar að auki hefur notkun bandanna mjög góð áhrif á flæðið í líkamanum, orkan og hugmyndaflugið eykst.

Einnig vil ég benda á að böndin henta mjög vel til endurhæfingar þar sem þau kalla ekki á mikið álag á t.d. hné eða bak og það er sama og engin slysahætta sem fylgir notkun bandanna.

 

Umsögn frá Þorvaldi Þorsteinsyni
Myndlistamanni og rithöfund

Samstarf mitt við Guðna Gunnarsson síðastliðið ár hér í Kaliforniu hefurverið það gjöfulasta og áhrifaríkasta sem ég hef nokkru sinni upplifað. Þó áttum við lítið sameiginlegt nema afmælisdaginn okkar þegar við hittumst.

Ástæðan er einföld: Guðni hefur ekki aðeins mótað einstakt líkams- og hugræktarkerfi sem gerir þér kleift að uppgötva sjálfan þig sem lífræna heild í sátt við sjálfan þig og umhverfi þitt, heldur lifir hann það sjálfur á hverjum degi. Hann er þannig fullkominn vitnisburður þess kærleika, þakklætis og gjafmildi sem hann byggir Rope Yoga lífsspekina á.

Ég óska sem flestum þess að þeir láti eftir sér að kynnast RopeYoga tækninni og þeirri heilbrigðu lífssýn sem henni fylgir.

 

Hlynur Áskelsson, Kennari

Fyrir tæpum tuttugu árum keypti ég mitt fyrsta líkamsræktarkort og síðan þá hef ég verið viðloðandi heilsuræktarstöðvar bæði hér á landi sem og erlendis. Ég kynntist Guðna fljótlega í gegnum þá vinnu sem hann stundaði en þá var hann einkaþjálfari í World Class.

Það vakti fljótlega áhuga minn að hans nálgun á þjálfun og vinnu með fólki var af öðrum toga en gerðist meðal þeirra sem gáfu sig út fyrir að hafa vit á líkams- og heilsurækt. Helsti munurinn á viðhorfum Guðna og annarra á þessum tíma var að Guðni beindi sjónum sínum að heilsufari, jafnt líkamlegu sem andlegu, á meðan aðrir einblíndu eingöngu á útlitslegu þættina.

Það leið ekki á löngu uns ég og Guðni urðum góðir félagar og ég fékk frekari innsýn í þá vinnu og þær aðferðir sem hann lagði stund á. Hann kynnti mér fyrir böndunum (Rope-Yoga) sem ávallt hafa verið hjartað og lungun í hans þjálfun. Sjálfur hef ég ávallt verið opinn fyrir nýjum leiðum í æfingum og prófað ýmislegt en það varð að segjast að eftir að hafa reynt böndin öðlaðist ég nýja innsýn í hvernig hægt var að æfa kviðvöðvana. Og var ég mikill áhugamaður um magaæfingar fyrir. En Rope-Yoga er miklu meira en bara magaæfingar!!!

Seinna atvikaðist það fyrir einskæra tilviljun að ég og Guðni fluttum á nær sama tíma til Los Angeles. Fyrir aðra röð tilviljana atvikaðist það ég kom til með að búa og starfa í nágrenni við heimili hans. Á þessu tíma sem teygði sig í nær tvö ár var ég þess heiðurs aðnjótandi að fylgjast með Guðna þróa og prófa æfingakerfið Rope-Yoga sem nú hefur tekið á sig fullþroskaða mynd.

Meðan á dvöl minni í Los Angeles stóð æfði ég undir handleiðsu Guðna og uppskar ríkulegan árangur í bættri heilsu. Ég öðlaðist aukna meðvitund um eigin líkama og andlega getu og sá það skýrarar en nokkru sinni fyrr hve huglægt viðhorf til verka hefur gríðarlega mikið að segja. Í raun og sannleika hefur það ALLT að segja. Það er einmitt það dásamlega við þetta æfingakerfi sem Guðni hefur þróað og sker það úr frá svo mörgum öðrum að unnið er með hin andlega þátt sem svo oft vill gleymast þegar líkams- og heilsurækt er annarrs vegar. Ef litið er framhjá þessum veigamesta þætti þá næst aldrei árangur og endirinn verður, eins og svo margir kannast við, uppgjöf.

Rope-Yoga er ekki æfinga kerfi sem varð til á einni nóttu. Ég hef fylgst með Guðna í bráðum tuttugu ár vera vakinn og sofinn yfir þessu barni sínu sem böndin eru. Þetta hefur verðið, og er, hans hjartans mál. Það er komin mikil reynsla á kerfið og það virkar og er frábært. Ólíkt öðrum æfingum eins og t.d. hlaupum og þolfimi sem reyna mikið á liði og stoðkerfi, sérstaklega fyrir þá sem eru eldri og þyngri, þá er Rope-Yoga einstaklega góð og heilbrigð leið til bættrar heilsu. Hreyfingarnar eru framkvæmdar í láréttri stöðu og krafurinn í kviðnum er nýttur til að framkvæma þær. Álagsmeiðsli t.d. í hnjám og öklum eru því hlutir sem ekki þarf að hafa áhyggjur af.

Rope-Yoga er fyrir alla. Konur, karla, unga sem aðeins eldri og þar fyrir ofan. Þetta er einnig tilvalin leið fyrir íþróttafólk sem vill bæta sig í sinni grein og þá skiptir ekki máli hver hún er. Sjálfur notaði ég Rope-Yoga með stórkostlegum árangri í tvígang fyrir rúmum ellefu árum þegar ég var að undirbúa mig fyrir keppni í líkamsrækt. Ég hvet alla sem hafa áhuga á líkams- heilsu- og hugrækt að kynna sér Rope-Yoga. Síðast en ekki síst hvet ég alla þá sem vilja koma sér af stað í reglulega þjálfun til að auka líkamlegt og andlegt atgerfi að kynna sér Rope-Yoga. Rope-Yoga er einstaklega góð leið í átt til betra lífs.

 

Elín Sigurðardóttir
Íþróttafræðingur og Ropeyoga kennari

Rope Yoga er öflugusta æfingakerfi sem ég hef kynnst.  Eftir klukkustundar æfingu finnst mér ég hafa meiri orku heldur en fyrir æfingu.  Rope Yoga eykur orkuflæði líkamans svo um munar og ég er betur undir það búin að takast á við verkefni dagsins.  Ég tek böndin alltaf með mér í ræktina og veit fátt betra en að byrja æfingar á böndunum, sérstaklega þegar ég er þreytt eftir erfiða viku og erfitt er að koma sér af stað.  Ég hef stundað íþróttir síðan á barnsaldri og meðal annars keppt í sundi í 18 ár og tekið þátt í tvennum Ólympíuleikum. 

Ég er þess fullviss um að ég mun nota böndin við mína hug- og heilsurækt það sem eftir er. Ég kynntist Guðna Gunnarssyni árið 1994 þegar ég heimsótti bróður minn í Los Angeles.  Þá var ég að æfa fyrir Olympíuleika og í topp formi.  Þarna kynntist ég fyrst böndunum.  Ég var vön að gera mörg hundruð kviðæfingar á dag og hélt að það myndi nú ekki taka mikið á að sprikla í þessum böndum, en þar skjátlaðist mér, ég var svo aum í kviðvöðvunum í viku á eftir að ég hafði aldrei lent í öðru eins.

Eftir að ég lauk BS námi í íþróttafræðum þá setti ég punktinn yfir i-ið með því að fara á 4 mánaða námskeið hjá Guðna í LA.  Eftir það fannst mér ég fyrst tilbúinn að taka að mér að verða þjálfari og spilar tækni  og hugmyndafræði Guðna þar stærstan þátt.

 

Umsögn frá Guðrúnu Báru Skúladóttir, íþróttafræðing (M.S.)
Kennari við University of Southern California, Los Angeles
Fyrrum lansliðskona í frjálsum íþróttum.

Ropeyoga gagnast öllum, hvort sem að þú ert íþróttamaður í fremstu röð eða heilsuræktariðkandi.  Ropeyoga eykur styrk og vöðvasnerpu, með aðaláherslu á kviðvöðvana.  Aukinn kviðvöðvastyrkur hefur ahrif á bætta likamsholningu og líkamsbeitingu.  Sterkir kviðvöðvar minnka álag á mænuna, sem þýðir minni lýkur á bakverkjum og bakmeiðslum.  Um leið og vöðvarnir styrkjast, er lögð áhersla á að lengja þá og auka liðleika.

Íþróttameiðsli geta oft stafað af stirðleika og/eða missterkum vöðvum.  Ropeyoga kemur á jafnvægi í líkamanum og getur minnkað stress og spennu sem oft fylgir keppnisíþróttum.

Af eigin reynslu og þekkingu get ég fyllilega mælt með að stunda Ropeyoga.  Ropeyoga hefur breytt viðhorfi mínu til heilsuræktar og íþróttaiðkunar til hins betra.

 

Frá Sturlu Þengilsyni
Kerfisfræðing/system analyst

Sæl Elín, og takk fyrir þessa frábæru tíma hjá þér og þeim félögum þínum.
Langar að segja frá minni reynslu af þessum æfingum.
 
- Sef núna heilu næturnar án verkjar í mjóbakinu.
- Geng mun lengur án verkjar í mjóbaki og finn að kviðvöðvarnir taka þátt í göngunni.
- Finn síður fyrir þreytu í mjóbaki við vinnu og stundum ekki heilu dagana.
- Konan segir að ég sé mikið beinni í réttstöðu þ.e. ekki eins fattur í baki.
- Finn verulega fyrir betri kviðvöðvum.
 
Í heildina mjög gott og það sem er kannski best er að mér finnst að margt eigi eftir að koma og sérstaklega hvað varðar almennan liðleika og vöðvateigni.  Í því sambandi langar mig að spyrja hvort verður framhaldsnámskeið sem er þá sniðið fyrir þá sem vilja halda áfram og þurfa ekki að byrja frá grunni.
 
Hvað mína sérstöðu varðar þá veistu að ég fékk lömunarveiki sem barn og það sem mér finnst eiginlega mest frábært við þetta er að ég nýt æfinganna alveg til jafns við ófatlaða en ég hef einmitt verið í YOGA áður og þá var ég alltaf í mesta basli með jafnvægisæfingarnar.
Í ROPEYOGA aftur á móti get ég t.d. nýtt hendurnar aðeins meira til stuðnings verri fætinum og í raun hjálpað honum yfir þröskuld þannig að hann er að taka í raun meiri þátt í æfingunum með böndunum en án þeirra.
 
Eins og við öll höfum upplifað þá mætti stundum vera meiri kyrrð í salnum og minni bassi í gangi frá hliðarsölunum.  Persónulega finnst mér YOGA-iðkun og tækjasalir ekki passa saman og þar sem ég sótti YOGA æfingar áður var hluti af upplifuninni að koma inn í rólegt og afslappað andrúmsloft á staðnum og bara við að koma inn þá fór maður í nokkurs konar afslöppunargír.  Þessi upplifun verður held ég aldrei til staðar í stórri líkamsræktarstöð eins og þarna er.  Annars er þjónustan þarna ágæt og ekkert hægt að kvarta yfir því.

 

Frá Atla Örvarsyni, Tónskáldi

Tölvan er mitt vinnutæki og hefur verið i nokkur ár.  Eg sat iðulega fyrir framan apparatið klukkutímum saman og gleymdi að taka mér pásu.  Smám saman fór ég að finna fyrir verkjum I herðum og baki og ég var alltaf “á leiðinni að fara að gera eitthvað í þessu.” 

Fyrir rúmu ári síðan bar ég gæfu til þess að með stuttu millibili sögðu tveir góðir vinir mínir mér frá Guðna Gunnarssyni og Ropeyoga.  Nokkrum dögum sídar lágu leiðir okkar Guðna saman á mannamóti þar sem ég sagði honum að “tölvan væri alveg að gera út af við mig.”  Hann leit á mig sposkur á svip og spurði hvernig tölva þetta væri eiginlega?!  Ég hugsaði mig um og sá strax að e.t.v. væri ekki vid tölvuna sjálfa að sakast.  Mér fannst þetta svo athyglisvert svar að ég ákvað að mæla mér mót vid þennan mann við fyrsta tækifæri. 

Ég fór strax að stunda böndin og það er skemmst frá því að segja að verkirnir voru á bak og burt eftir nokkrar vikur.  Samhliða æfingunum áttum við margar góðar samræður sem tengdust okkar fyrsta spjalli.  Ef að tölvan sjálf var ekki að ráðast á mig, hver var þá ábyrgur fyrir minni líðan?  Svarið var auðvitað, ég sjálfur.

Ropeyoga og heimspekin sem hann byggir á, kennir okkur að vera til staðar og þannig ábyrg fyrir okkar líðan. Ólíkt því að “fara Í ræktina” þar sem fólk er iðulega að keppast við að vera andlega fjarverandi og reyna láta tímann líða sem hraðast (t.d. med því að horfa á sjónvarpið), snýst Ropeyoga um ad vera fyllilega í núinu.  Að æfa og þjálfa líkamann með huga og líkama samtengda er mögnuð upplifun sem kennir okkur smám saman ad þekkja  líkamann  nógu vel til að geta borið ábyrgð á heilsunni sjálf. 

Mín reynsla er sú að þessi upplifun færist síðan yfir á önnur svið lífsins og með því að læra að beita athygli og kyrra hugan lærir maður að þekkja sjálfan sig betur.  Þetta er sú gjöf sem Guðni hefur fært okkur með Ropeyoga.  Eg mæli heilshugar með honum fyrir alla!

 


PÓSTLISTASKRÁNING

Skrá

Afskrá
 


Smelltu hér að neðan  til að skoða vefslóðir vina og samstarfs-aðilla Rope Yoga...

» Rope Yoga Setrið

» Elín Sigurðardóttir
» Hreysti
» Græni Hlekkurinn
» Þorvaldur Þorsteins.
» World Class
» Dansrækt JSB
» Fully Alive Coaching
» Kennsla.is

» Heilsuhöndinn

» Veitingahúsið Gló





 Hvað gerir RopeYoga?

 • Eflir brennslu og flæði.
 • Þróar grunnstyrk
   kviðarvöðva.
 • Eykur orku.
 • Eykur blóðflæði í kvið.
 • Eykur súrefnisupptöku.
 • Eykur upptöku
   næringarefna.
 • Eflir úrgangslosun.
 • Eykur liðleika.

 

 

    

www.hreysti.is | www.ropeyogasetrid.is | www.ropeyoga.com | www.glo.is | www.glomotion.com | gg@ropeyoga.com