..............................

U M S A G N I R . . .

Eftir að ég byrjaði að stunda Rope Yoga hefur ýmislegt jákvætt gerst. Ég er öll miklu sterkari, liðugri og líður betur í kroppnum. Maður fer að vinna betur og betur úr hverri æfingu og læra meira um hvernig hægt er að nýta þær. Ég er miklu meðvitaðri um hvernig ég ber mig og vöðvabólgur eru liðin tíð. Ég reyni að sleppa aldrei úr tíma því mér finnst Rope Yoga gefa mér kraft til að takast á við hin ýmsu verkefni hversdagsins.

Hildur Helgadóttir hjúkrunarforstjóri
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
 

 Lesa meira

 ..............................

Smelltu hér til að versla RopeYoga vörur...

 Heim    Prenta    Hafa samband    

H e i l b r i g ð i

Í samanburði við hefðbundnar kviðæfingar, þá er Ropeyoga áhrifameira en flest önnur líkamsræktartæki sem eru á markaðinum í dag.  Æfingarnar henta fyrir alla aldurshópa og allar gerðir líkama.  Þú finnur strax fyrir árangri eftir fyrstu æfinguna, án þess að þurfa að beita valdi eða að þrauka.  Þar fyrir utan er vitund okkar og öndun meðvituð um aukið súrefnisflæði, aukið blóðflæði og betri meltingu.

Þegar kviðholsvöðvar líkamanns eru sterkir og í jafnvægi, þá losa þeir um spennu í bakinu og bakvöðvunum sem halda uppi hryggjarsúlinni.

Viðskiptavinir Ropeyoga uppgötva oft mjög hraða og dramatíska framför í formi betri meltingar, meiri krafts, reglulegri matarlystar, minni meltingartruflana og minni þembu.

 

ÆFINGAR MEÐ ROPE YOGA BÖNDUNUM...

  • Vekja meðvitundina, sem hjálpar okkur að velja að lifa í augnablikinu, með samúð að leiðarljósi í stað kúgunnar og gagnrýni.
  • Virkja og staðfesta innri visku og heilnæmi lífaflsins (prana).
  • Styrkja líkamann með þeim mismunandi æfingum sem Rope Yoga býður uppá, auk þess sem þær samhæfa og auðvelda hverjum og einum að lifa lífinu á betri veg, með sem minnstu viðnámi.
  • Auka blóðstreymi hjartans og æðakerfisins, sem gerir okkur kleyft að vinna úr meiru magni súrefnis og orkuflæðis, sem eykur og styrkir meltinguna.
  • Næra hverja einustu frumu í líkamanum og virkja betur sogæðakerfi líkamans, sem losar sig við óæskileg eiturefni.
  • Hvetja til endaloka þess gamla með því að fyrirgefa sjálfum okkur, um leið og við tökum ábyrgð á því hver og hvar við erum í lífinu, svo við getum skapað okkur ný hlutskipti.
  • Auka ást okkar á lífinu og ánægju þess að lifa.
  • Minnka ótta fólks við að óttast óttann; þ.e. of margir eru hræddir við óttann og forðast að horfast í augu við þessa tilfinningu sem er einungis hluti af okkur sjálfum. Við lærum að sætta okkur við þær tilfinningar sem við höfum og hættum að streitast á móti mótlætinu.
  • Hjálpa okkur að beina athyglinni að tilfinningunum sem koma upp í hugann á meðan við æfum Rope Yoga, sem hjálpar okkur að brjóta niður ávana og venjur og losar um hefta orku í líkamanum.
  • Býður uppá að uppgötva allar þær marvíslegu hliðar á sjálfinu, sem gerir okkur kleift að sameina og vinna úr lífsreynslum sem við höfum ekki tekist á við.
  • Hvetja og stuðla að breytingum á okkur sjálfum með hjálp sjö þrepa Rope Yoga kerfisins, sem hefst með vakningu til vitundar sem síðan leiðir til frelsunar, ánægju og orkulegum allsnægtum.
  • Auka sjálfsálit, sjálfsvirðingu og sjálfsvirði, auk ástar á okkur sjálfum.
  • Breyta og bæta hegðunarmynstri okkar með því að kenna okkur nýjar hreyfingar líkamans.
  • Kenna okkur að þiggja jafn sem gefa þegar kemur að lífsreynslu okkar.
  • Auka sjálfsvitund okkar og fella saman í eina heild líkama, huga, tilfinningar og sál.

 

ROPE YOGA EYKUR BLÓÐSTREYMI TIL MELTINGARFÆRANNA
Þegar blóðstreymi eykst í meltingarfærunum þá eykst brennslan í sama hlutfalli.

ROPE YOGA EYKUR SÚREFNISTÖKU Í KVIÐARHOLI
Meðvituð öndun í Ropeyoga kerfinu flytur aukið súrefni um kviðarholið, sem síðan eykur og bætir flesta starfsemi líkamans.

ROPE YOGA BÆTIR MELTINGU NÆRINGAREFNA
Súrefni og aukið blóðstreymi bætir úrvinnslu nauðsynlegra næringarefna. Blóðið flytur öll helstu næringarefni til líkamsfrumana á meðan súrefnið heldur frumunum gangandi. Ropeyoga hvetur upptöku næringarefna og eykur meltingu/brennslu.

ROPE YOGA MINNKAR EITURÁHRIF
Aukin blóðhringrás, meira súrefni og Ropeyoga, sem í raun "nuddar innri líffæri," valda því að líkaminn á auðveldara með að losa sig við og brjóta upp eiturefni.

ROPE YOGA JAFNAR MATARLYSTINA
Flestir sem stunda Ropeyoga verða fljótt varir við að matarlistin verður jafnari og betri.

ROPE YOGA BÆTIR BRENNSLU
Ropeyoga eykur fitubrennslu og uppbyggingu vöðva, ekki aðeins í kviðarholinu heldur um allan líkamann. Þetta verður til við samvirkni blóðrásarinnar, öndunnar, hormónastöðu og efnarfræðilegrar orkuframleiðslu.

ROPE YOGA EYKUR OG BÆTIR VÖÐVASKIPAN Í KVIÐARHOLINU
Ropeyoga styrkir vöðva í efri, mið og lægra kviðarholi, auk hliðarvöðva kviðarholsins. Betra form bætir meltingu, líkamsstöðu og styrkir hryggarsúluna.

ROPE YOGA LAGAR ALLA LÍKAMLEGA VÖÐVASKIPAN
Auk kviðarholsins þá styrkjast allir stærstu vöðvar líkamans, svo sem efri fótleggir og brjóskassi, ásamt höndum, rassi, og baki.  Aukið magn vöðva þýðir að aukin brennsla á sér stað - hitaeininga brennsla.

ROPE YOGA EYKUR VÖÐVASKIPAN INNRI LÍFFÆRA
Maginn, jafnt sem stór og smá innri líffæri, eru gerð úr vöðvum sem þurfa reglubundna hreyfingu og vöðvasamdrátt til að geta starfað. Ropeyoga styrkir þessa vöðva sem svo bæta upplausn fæðunnar og hreyfingu meltingarveggjanna, sem er besta leið fæðunnar um meltinga kerfið.

ROPE YOGA LOSAR ÚRGANGSEFNI ÚR LÍKAMANUM
Eftir því sem vöðvar kviðarholsins og líffæranna verða sterkari, þeim mun auðveldari og jafnari verður losun úrgangsefna úr líkamanum.

Með því að styrkja kviðholsvöðvana, þá losnum við undan bakverkjum og spennu í hálsi.  Byrjendur sem stunda Ropeyoga finna strax fyrir auknum styrk kviðholsvöðvana, sem leiðir til betri meltingar, betri upplausnar fæðunnar, auðveldari losun úrgangsefna og betri brennslu.

 


PÓSTLISTASKRÁNING

Skrá

Afskrá
 


Smelltu hér að neðan  til að skoða vefslóðir vina og samstarfs-aðilla Rope Yoga...

» Rope Yoga Setrið

» Elín Sigurðardóttir
» Hreysti
» Græni Hlekkurinn
» Þorvaldur Þorsteins.
» World Class
» Dansrækt JSB
» Fully Alive Coaching
» Kennsla.is

» Heilsuhöndinn

» Veitingahúsið Gló





 Hvað gerir RopeYoga?

 • Eflir brennslu og flæði.
 • Þróar grunnstyrk
   kviðarvöðva.
 • Eykur orku.
 • Eykur blóðflæði í kvið.
 • Eykur súrefnisupptöku.
 • Eykur upptöku
   næringarefna.
 • Eflir úrgangslosun.
 • Eykur liðleika.

 

 

    

www.hreysti.is | www.ropeyogasetrid.is | www.ropeyoga.com | www.glo.is | www.glomotion.com | gg@ropeyoga.com