..............................

U M S A G N I R . . .

Eftir að ég byrjaði að stunda Rope Yoga hefur ýmislegt jákvætt gerst. Ég er öll miklu sterkari, liðugri og líður betur í kroppnum. Maður fer að vinna betur og betur úr hverri æfingu og læra meira um hvernig hægt er að nýta þær. Ég er miklu meðvitaðri um hvernig ég ber mig og vöðvabólgur eru liðin tíð. Ég reyni að sleppa aldrei úr tíma því mér finnst Rope Yoga gefa mér kraft til að takast á við hin ýmsu verkefni hversdagsins.

Hildur Helgadóttir hjúkrunarforstjóri
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
 

 Lesa meira

 ..............................

Smelltu hér til að versla RopeYoga vörur...

 Heim    Prenta    Hafa samband    

F y r i r t æ k i ð

Fyrirtækið Ropeyoga hefur boðið upp á einkaþjálfun fyrir einstaklinga og fyrirtæki frá því árið 1991.  Á sama tíma hefur fyrirtækið unnið að þróun Ropeyoga heilsuræktarkerfisins, sem er einstakt sinnar tegundar því kerfið býður uppá nýja gerð æfinga með aðaláherslu á kviðholsvöðvana.  Æfingarnar ganga útá að nota athygli, öndun, og átak til þjálfunarinnar, með uppbyggingu og aðgang að vöðvum og brennslu hitaeininga í huga. 

Markaðssetning Ropeyoga heilsuræktarkerfisins hófst á síðasta ári á Íslandi og hefur farið frammúr björtustu vonum aðstandenda. World Class heilsustöðin í Laugardalnum hefur boðið uppá Ropeyoga námskeið frá áramótum og hafa öll námskeiðin selst upp síðan kennsla hófst.  Nýverið hófu einnig Jassballetskóli Báru, Hress í Hafnarfirði og Stúdíó Elínar Sigurðardóttur kennslu á Ropeyoga á höfuðborgarsvæðinu.

Ropeyoga fyrirtækið hóf starfsemi sína í Bretlandi á síðasta ári í samvinnu við Lotus Lifestyle Studíóið sem er staðsett í Chelsea Harbour hverfinu í London.  Ropeyoga hefur fengið gríðarlega góð viðbrögð í breskum fjölmiðlum og hefur umfjöllun um fyrirtækið verið mjög mikil, sérstaklega í tímaritum (sjá Umfjöllun og greinar).

Vegsemd og velgengni fyrirtækisins i Bandaríkjunum hefur aukist jafnt og þétt  síðastliðin ár og á annað þúsund viðskiptavinir eru á skrá fyrirtækisins.  Fyrsta Ropeyoga studíó Guðna opnaði í Los Angeles fyrir áratug síðan.  Annað stúdíó er að opna nú um þessar mundir í Hollywood. 

Viðskipavinir Guðna hafa verið úr öllum geirum atvinnulífsins þó svo mest beri á fólki úr kvikmyndaheiminum.  Stórfyrirtæki á borð við Walt Disney Inc. hafa meðal annars verið viðskiptavinir hans.

Guðni hefur einnig þjálfað fjölda leikara í Hollywood s.s. Kim Basinger, Anne Heche, Kevin Dobson, Carla Gugion, Julie Dreyfus og Julie Kavner svo einhverjir séu nefndir.

 


PÓSTLISTASKRÁNING

Skrá

Afskrá
 


Smelltu hér að neðan  til að skoða vefslóðir vina og samstarfs-aðilla Rope Yoga...

» Rope Yoga Setrið

» Elín Sigurðardóttir
» Hreysti
» Græni Hlekkurinn
» Þorvaldur Þorsteins.
» World Class
» Dansrækt JSB
» Fully Alive Coaching
» Kennsla.is

» Heilsuhöndinn

» Veitingahúsið Gló





 Hvað gerir RopeYoga?

 • Eflir brennslu og flæði.
 • Þróar grunnstyrk
   kviðarvöðva.
 • Eykur orku.
 • Eykur blóðflæði í kvið.
 • Eykur súrefnisupptöku.
 • Eykur upptöku
   næringarefna.
 • Eflir úrgangslosun.
 • Eykur liðleika.

 

 

    

www.hreysti.is | www.ropeyogasetrid.is | www.ropeyoga.com | www.glo.is | www.glomotion.com | gg@ropeyoga.com