V ö r u r
......................................................................................
Ropeyoga kerfið inniheldur tækin, þjálfunarleiðbeiningar, rit um heimspeki kerfisins og kennslumyndband.
Ropeyoga kerfið er auðflytjanlegt, knýr sig sjálft, og þarf ekkert viðhald. Tækin innihalda tvær fótalykkjur, tvö handföng og einfalt vogarkerfi fest á klafa til búa til jafnvægitæki sem knúið er orku mannslíkamans. Á þann hátt þjálfar tækið kviðinn, án þess að neðri hluti bakvöða og mjaðmavöðva komi þar nærri.
Hönnunin miðar að því að hvetja notandann og að gera honum kleift að nota grunnvöðva kviðarins til fullnustu við æfingarnar. Tækin eru þannig gerð að þau veita strax svörun frá iðrum við æfingarnar. Pallurinn er þægilegur, stendur stöðugur og auðveldar teygjur og nálgun við stóru vöðvahópa líkamans, til að rækta valið viðbragð í stað ósjálfráðra.
Tækin eru úr stáli og mótuðu plasti og framleidd eftir ströngustu gæðakröfum. Fólk vill í síauknum mæli geta sinnt líkamsrækt sinni heima fyrir og samfara fjölbreyttu framboði á hentugum tækjum til þess, þá er ljóst að Ropeyoga er þar fremst í flokki, því tækin eru einföld, ódýr og skila hámarksárangri.
Tækin henta sérstaklega vel einstaklingum í sérhæfðum störfum, sem hreyfa sig lítið, brenna litlu, og hafa því áhyggjur af þyngd sinni. Fest viljum við viðhalda eigin vöðvastyrk og ef við höfum almennan skilning á gagnsemi líkamsræktar fyrir aukinni orku, þá átta flestir sig strax á því að Ropeyoga kerfið skilar umtalsverðum árangri á skömmum tíma. Árangurinn skilar sér helst í auknum krafti og vellíðunarkennd, sem samfara góðu líkamsástandi skapast af reglulegri þjálfun.
www.hreysti.is
smelltu hér til að fara á vefsíðu Hreysti ehf sem er umboðsaðili Rope Yoga bekkja á íslandi.
www.ropeyoga.com
til að fara á vefsíðu ropeyoga.com sem er vefsíða Rope Yoga í Bandaríkjunum.