..............................

U M S A G N I R . . .

Eftir að ég byrjaði að stunda Rope Yoga hefur ýmislegt jákvætt gerst. Ég er öll miklu sterkari, liðugri og líður betur í kroppnum. Maður fer að vinna betur og betur úr hverri æfingu og læra meira um hvernig hægt er að nýta þær. Ég er miklu meðvitaðri um hvernig ég ber mig og vöðvabólgur eru liðin tíð. Ég reyni að sleppa aldrei úr tíma því mér finnst Rope Yoga gefa mér kraft til að takast á við hin ýmsu verkefni hversdagsins.

Hildur Helgadóttir hjúkrunarforstjóri
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
 

 Lesa meira

 ..............................

Smelltu hér til að versla RopeYoga vörur...

 Heim    Prenta    Hafa samband    

Þ j á l f u n

Ropeyoga er heildrænt heilsuræktarkerfi sem sameinar líkamsþjálfun, hugrækt og lífsspeki til þess að milda streitu, draga úr sársauka, efla hreyfifærni og þróa grunnstyrk.

Ropeyoga er alger nýjung æfinga sem snúa að kviðholsvöðvunum, því æfingarnar ganga útá að nota hugann, öndunina og hreyfanleika til þjálfunarinnar, með uppbyggingu á vöðvum og brennslu kaloría í huga.

Það eru nokkrar ástæður fyrir því að Rope Yoga gengur miklu lengra en hefðbundnar kviðaræfingar:

  • Æfingarnar henta öllum aldurshópum án tillits til núverandi líkamsástands.
  • Þú finnur strax fyrir árangri eftir fyrstu æfinguna.´
  • Þú beitir hvorki valdi eða þarft að þrauka við gerð æfinganna. 
  • Vitund okkar og öndun verður meðvituð um aukið súrefnisflæði, aukið blóðflæði og betri meltingu.

Ætlun Ropeyoga er að byggja upp kviðholsvöðvana sem halda uppi og rétta úr líkamanum.  Það að standa réttur þýðir í raun að vera í jafnvægi. Þegar líkaminn er uppréttur og beinn, þá notum við minnsta orku í ferðalagi lífsins.  

Æfingar í Ropeyoga samanstanda af fjögurra þrepa kerfi sem eru:

  • Flæðisæfingar.
  • Öndunaræfingar.
  • Teygjur.
  • Slökun, með áherslu á neðri hluta baks, mjaðmir og hnésbótarsinar.

Kerfið samanstendur af tuttugu æfingum sem tekur á bilinu 30 til 50 mínútur að fara í gegnum, allt eftir því hve endurtekningar eru margar. Æfingarnar miða að því að fólk nái fullkomnu valdi á beitingu grunnvöðva kviðarins.  Markmiðið er að losna við áreits- og áráttuhreyfingar og rækta meðvituð og markviss viðbrögð vöðva.

Þjálfunin miðar að því að þróa grunnvöðvanna (kviðvöðvanna) til að ná jafnvægi, styrk og stöðugleika. Sem mildara form þjálfunar þá stuðlar Ropeyoga að betri svefni, dregur úr streitu og eykur langlífi. Ropeyoga getur einnig farið saman við hefðbundar þjálfunaraðferðir sem miða að því að efla styrk og  grennast. 

Aðrir kostir Ropeyoga eru eftirfarandi:

  • Þróar grunnstyrk kviðarvöðva.
  • Heldur þyngd í skefjum.
  • Eykur orku.
  • Eykur á hitastjórnun.
  • Eykur blóðflæði í kvið.
  • Eykur súrefnisupptöku.
  • Eykur upptöku næringarefna.
  • Eflir úrgangslosun.
  • Eykur liðleika.

Kerfið býr yfir nokkrum einstökum eiginleikum sem auka á gagnsemi þess fyrir iðkandann.

Fót- og mjaðmavöðvar eru slakir og er beitt sem þyngd til að veita aðgang að kviðnum. Með hreyfingu handleggja er skapað mótvægi þannig að kviðurinn verður uppspretta styrks og hreyfanleika.

Þar sem búnaðurinn gengur fyrir eigin orku þarf notandinn að beita afli við notkun hans og gagnast það því hjarta- og æðakerfi líkamans.

Æfingarnar ná til og virkja kviðarvöðva með stöðugum samdrætti og útþenslu eins og stimpilgangur  í vél. Þessi hreyfing örvar vöðva og innri líffæri og eykur blóðflæðið. Hreyfing og öndun fara saman og örva sogæðakerfið, sem sér um að losa líkamann við eiturefni.

Þjálfunin eykur hreyfanleika og fimi og stuðlar að opnari huga og frjálsari líkama. Æfingarnar eru gerðar í þægilegri stellingu liggjandi á baki eða hlið.

Allir aldurshópar geta lagt stund á æfingarnar og þær hafa hjálpað fólki sem hefur glímt við langvarandi bakverki, ásamt verkjum í hnjám og öxlum.  Æfingarnar lina álag og bælda spennu frá líkamlegum og tilfinningalegum áföllum liða og vöðva.

Í samanburði við aðrar gerðir líkamsræktartækja, þá er:

  • Auðveldara er að ná valdi á Ropeyoga heldur en venjulegum líkamsræktartækjum sem byggja á þyngd, viðnámi og þyngdaraflinu.
  • Ekki þarf að beita átökum við æfingarnar sem oft geta leitt til tognunarmeiðsla.
  • Ropeyoga gefur samstundis svörun og byrjar strax að skila jöfnum árangri.
  • Stuðlar að „meðvituðu heilbrigði“ og vitund með áherslu á þægilega nálgun byggða á innsæi.
  • Hentugt og skilar árangri á skemmri tíma.

Viðskiptavinir Ropeyoga uppgötva oft mjög hraða og dramatíska framför í formi betri meltingar, meiri krafts, reglulegri matarlystar, minni meltingartruflana og minni þembu.  Iðkendur Ropeyoga finna að kviðholsvöðvarnir verða sterkari og það sem meira er, þeir sjá framfarir og árangur.  Sjáanlegar breytingar á formi og tónum vöðvanna koma fram miklu fyrr en ella, vegna þess að Ropeyoga kerfið er mjög áhrifaríkt en að sama skapi mjög einfalt að skilja.


PÓSTLISTASKRÁNING

Skrá

Afskrá
 


Smelltu hér að neðan  til að skoða vefslóðir vina og samstarfs-aðilla Rope Yoga...

» Rope Yoga Setrið

» Elín Sigurðardóttir
» Hreysti
» Græni Hlekkurinn
» Þorvaldur Þorsteins.
» World Class
» Dansrækt JSB
» Fully Alive Coaching
» Kennsla.is

» Heilsuhöndinn

» Veitingahúsið Gló





 Hvað gerir RopeYoga?

 • Eflir brennslu og flæði.
 • Þróar grunnstyrk
   kviðarvöðva.
 • Eykur orku.
 • Eykur blóðflæði í kvið.
 • Eykur súrefnisupptöku.
 • Eykur upptöku
   næringarefna.
 • Eflir úrgangslosun.
 • Eykur liðleika.

 

 

    

www.hreysti.is | www.ropeyogasetrid.is | www.ropeyoga.com | www.glo.is | www.glomotion.com | gg@ropeyoga.com