..............................

U M S A G N I R . . .

Eftir að ég byrjaði að stunda Rope Yoga hefur ýmislegt jákvætt gerst. Ég er öll miklu sterkari, liðugri og líður betur í kroppnum. Maður fer að vinna betur og betur úr hverri æfingu og læra meira um hvernig hægt er að nýta þær. Ég er miklu meðvitaðri um hvernig ég ber mig og vöðvabólgur eru liðin tíð. Ég reyni að sleppa aldrei úr tíma því mér finnst Rope Yoga gefa mér kraft til að takast á við hin ýmsu verkefni hversdagsins.

Hildur Helgadóttir hjúkrunarforstjóri
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
 

 Lesa meira

 ..............................

Smelltu hér til að versla RopeYoga vörur...

 Heim    Prenta    Hafa samband    

H e i m s p e k i

Rope Yoga kenningin snýst um þakklætis hugarástand. Og kenningin er einföld.  "Verum breytingin."  Rope Yoga gengur útá það að við séum breytingin sem til er ætlast og að við veljum viðbragð, sem gengur útá að taka ábyrgð á því sem maður ætlast til að framtíðin beri í skauti sér.

Grunnhugsun þess að taka ábyrgð er sú að vera til staðar í augnablikinu.  Þegar við erum til staðar í augnablikinu, þá höfum við og getum notað frjálsan vilja eða óhindrað val, sem er eitt það stórkostlegasta vald sem maðurinn hefur aðgang að.  Við byrjum að velja og ætla framtíð okkar og hlutskipti í beinu samhengi við það sem við teljum að við verðskuldum í lífinu.

Flest fólk sem ég hef hitt og unnið með í gegnum tíðina hefur það sameiginlegt að vilja lifa hamingjusömu og ánægjulegu lífi – flestir vilja hafa öruggan stað í tilverunni, bæði líkamlegan og andlegan.  Að finna eða nálgast þennan örugga og hamingjusama stað í tilverunni er oft þrautin þyngri, því mannfólkið á það til að flækja lífið óþarflega mikið og oft á tíðum týnast í eigin tilvist.

Ropeyoga heimspekin býður hinsvegar uppá sáraeinfalda leið til að ráða frammúr þessari tilvistarkreppu, sem svo mörg okkar eru að kljást við daglega. Lífið er ekkert annað en ferli sem þarf að sinna og rækta.  Við vitum öll að vélar og verkfæri endast lengur og gegna betur hlutverki sínu ef vel er um þau hirt. Það sama á við um huga okkar og líkama.

Allt sem við þurfum til að öðlast hamingju í lífinu er að vera til staðar og sýna tilverunni fulla athygli og umfram allt VILJA BREYTINGU.  Þegar þau skilyrði eru til staðar, þá byrjum við að skapa okkur þá tilvist í lífinu sem við öll ásælumst.

Ropeyoga er kerfi vellíðunar og þjálfunar sem tekur beint á gagnkvæmum tengslum líkama og hugar. Hugsanir og gjörðir falla saman við heimspeki og iðkun til að skapa verundarástand sem eflir lífsfyllingu og hamingju. Að sama skapi þá sameinar Ropeyoga öndun, hreyfingu og hugsun.  Þessi sameining öndunnar og hreyfingar hefur þrek og heilsu upp í nýjar hæðir og iðkendur sjá sjálfa sig í nýju ljósi og öðlast þar af leiðandi mátt til að skapa nýjan og gjöfulan veruleika.

Með öðrum orðum, Ropeyoga er aðferð til að uppgötva, vinna úr og losna undan líkamlegum og andlegum takmörkunum, sem yfirleitt eiga rætur sínar að rekja í meðvitaðan ótta, bælingu og ranghugmyndir sem við höfum lengi bælt og haldið föstum í kviði okkar. Það er margsannað mál að það sem við hugsum um er sá raunveruleiki sem við búum í.  Til dæmis, þá höfum við öll verið einhvern tíma í neikvæðu skapi og þá er einsog allt í kringum okkur verði neikvætt – það gengur einfaldlega ekkert upp.  Að sama skapi, ef við hugsum jákvætt, þá bregst tilveran jákvætt við gjörðum okkar. Hugsanir, orð og gjörðir skapa veruleikann og afleiðing þess er líf einstaklingsins og örlög.

Ropeyoga kerfið þróar einnig og magnar upp sveigjanleika hugans og eflir líkamshreyfingar í átt til opnunar.  Við búum öll yfir þeim hæfileika að geta unnið úr líkamlegum og andlegum festum í lífinu og að geta breytt lífshlaupinu með því að endurskipuleggja hugsanir okkar og gjörðir. Fortíðin hefur ekkert vald yfir okkur nema þegar við gefum valdið frá okkur og lifum í fortíðinni.  Við hættum til dæmis ekki að skíða vegna þess að við dettum einu sinni í brekkunni.  Við forðumst hinsvegar að gera sömu mistök aftur og um leið verðum við betri skíðamenn.  Það sama á við um lífið og einmitt þess vegna erum við okkar eigin skaparar.  Ef við á hinn bóginn látum mistök og fyrri syndir stýra lífi okkar, þá verðum við aldrei hamingjusöm.

Ropeyoga er því leið til umbreytingar. Að vera umbreytingin jafngildir því að beita frjálsum vilja, sem er öflugasta tæki mannsins til að taka ábyrgð á framtíð sinni – það að vera til staðar og til taks og nota getu sína til að velja og ætla án fordóma eða bindingar. Þessi afstaða laðar að hagsæld og gnótt á öllum sviðum.

Heilsa er einungis ástand hugar og líkama, en hefur ekkert með hnignum og sjúkdóma að gera. Þegar við lifum í núinu, með minni mótþróa og í ríkari sátt við okkur sjálf, þá tökumst við á lífinu einsog það er, en ekki byggt á þeim hugmyndum sem samfélagið setur okkur.  Ropeyoga tekur því á öllum hugsunum einstaklingsins og eyðir þeim hugsunum, orðum og gjörðum sem valdið geta sjúkdómum og hrörnun; með öðrum orðum, athyglinni er beint að frjálsum vilja og meðvituðu vali.

Ropeyoga er einfalt og öflugt kerfi sem stuðlar að heilbrigðu lífi.  Við nefnum það aðgæsluhreysti; ástand dýpri vellíðunar, betri árangurs og gnóttar sem leiðir til lifandi lífs (að lifa lífinu lifandi).

Þeir sem ástunda Ropeyoga fylgja eftir hvetjandi sjö þrepa kerfi, sem vekur þá til umhugsunar. Hér má lesa meira um skrefin sjö til velsældar.


PÓSTLISTASKRÁNING

Skrá

Afskrá
 


Smelltu hér að neðan  til að skoða vefslóðir vina og samstarfs-aðilla Rope Yoga...

» Rope Yoga Setrið

» Elín Sigurðardóttir
» Hreysti
» Græni Hlekkurinn
» Þorvaldur Þorsteins.
» World Class
» Dansrækt JSB
» Fully Alive Coaching
» Kennsla.is

» Heilsuhöndinn

» Veitingahúsið Gló





 Hvað gerir RopeYoga?

 • Eflir brennslu og flæði.
 • Þróar grunnstyrk
   kviðarvöðva.
 • Eykur orku.
 • Eykur blóðflæði í kvið.
 • Eykur súrefnisupptöku.
 • Eykur upptöku
   næringarefna.
 • Eflir úrgangslosun.
 • Eykur liðleika.

 

 

    

www.hreysti.is | www.ropeyogasetrid.is | www.ropeyoga.com | www.glo.is | www.glomotion.com | gg@ropeyoga.com