..............................

U M S A G N I R . . .

Eftir að ég byrjaði að stunda Rope Yoga hefur ýmislegt jákvætt gerst. Ég er öll miklu sterkari, liðugri og líður betur í kroppnum. Maður fer að vinna betur og betur úr hverri æfingu og læra meira um hvernig hægt er að nýta þær. Ég er miklu meðvitaðri um hvernig ég ber mig og vöðvabólgur eru liðin tíð. Ég reyni að sleppa aldrei úr tíma því mér finnst Rope Yoga gefa mér kraft til að takast á við hin ýmsu verkefni hversdagsins.

Hildur Helgadóttir hjúkrunarforstjóri
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
 

 Lesa meira

 ..............................

Smelltu hér til að versla RopeYoga vörur...

 Heim    Prenta    Hafa samband    
8.02.2009
Rope Yoga fyrir verðandi mæður

Öflugur undirbúningur fyrir meðgönguna  - Miklu máli skiptir að við gefum okkur tíma til þess að hugsa vel um okkar líkamlegu og andlegur vellíðan. Engin tími er betur til þess fallinn að hlúa vel að okkur en þegar lítið líf kviknar í líkama móður

Rope Yoga
styrkir þig líkamlega, andlega og tilfinningalega

Mættu í þína tilvist. Vertu með fulla athygli. Vertu í vitund. Vertu í jafnvægi. Endurheimtu þig. Vertu í líkamanum. Finndu tilfinningarnar. Komdu með blíðu og kærleik. Uppgötvaðu Rope Yoga.  

Árangur samstundis

Rope Yoga er heildræn nálgun. Hug- og heilsurækt eins og Guðni orðar það. „Rope Yoga gengur út frá því sem við köllum eining; athygli, öndun og átak. Nálgunin er á þann hátt að þú ert í vitund með þinni eigin tilvist þegar þú ert að gera eitthvað. Það er sem sagt alltaf ásetningur í öllum hreyfingum.

Engin snerpa, ekkert kast og ekkert ofbeldi. Það er ekki hægt að beita líkamanum á steyptum hnefa en það er mjög auðvelt hins vegar með kærleik og blíðu og þegar ásetningur er kominn inn í myndina. Þegar þú mætir inn í þína tilvist og ferð til dæmis að stunda líkamsrækt með fullri athygli og vitund, þá margfaldast niðurstaðan. Strax eftir fyrstu æfinguna í Rope Yoga þá finnur maður árangur og án þess að hafa þurft að beita sig hörku.“  


Rope Yoga er margþætt en aðaláherslan er á miðju líkamans. „Djúpkviðurinn er kjarninn að tilvist líkama okkar og í Rope Yoga erum við að virkja hann. Kviðarholsvöðvarnir bera uppi líkamann og með því að fá aðgang að þeim náum við að rétta úr líkamanum. Að standa uppréttur, beinn í baki, þýðir í raun að vera í jafnvægi.“

Rope Yoga:
•    Örvar athyglisgáfuna
•    Örvar öndunina
•    Styrkir og örvar alla vöðva líkamans
•    Eykur blóðstreymi til magans
•    Eykur súrefnisupptöku í kviðarholi
•    Bætir nýtinug næringarefna
•    Losar úrgangsefni úr líkamanum
•    Jafnar matarslystina
•    Styrkir og örvar starfsemi innri líffæra
•    Bætir brennslu


Öflugur undirbúningur fyrir meðgöngu
Miklu máli skiptir að við gefum okkur tíma til þess að hugsa vel um okkar líkamlegu og andlegur vellíðan. Engin tími er betur til þess fallinn að hlúa vel að okkur en þegar lítið líf kviknar í líkama móður. Alveg jafn mikilvægt er að halda því áfram eftir að barnið kemur í heiminn til að bæði barnið og nýbakaða móðirin séu í góðu jafnvægi. Rope Yoga er tilvalin leið til að halda þessu jafnvægi.

Við styrkjum allan kviðinn, allt kviðarholið og líffærin þar einnig, segir Guðni. „Ég reyni að þjálfa líffærin sem eru vefir að þessum vöðvum. Samdráttur og útvíkkun gerir það að verkum að líffærin verða hæfari og öll melting gjörbreytist ásamt súrefnisflæði í líkamanum. Á sama tíma og þetta gerist þá er verið að styrkja allt vöðvakerfið  og læra að losa aðra vöðva. Einnig er lögð áhersla á grindarbotnsvöðvana og farið er inn í vöðva sem lúta að kynlífi og móðurlífinu. Þetta er geysilega öflugur undirbúningar fyrir meðgöngu. Byggist ekki á hörðum nálgunum, samdrætti eða einhvers konar ofbeldi. Allt þetta snýst um mýkt og flæði. Það þýðir að vöðvarnir verða mjúkir og sterkir því allur styrkur vöðva byggist á samdrætti. Vöðvi sem er mjúkur er fjórum sinnum sterkari en vöðvi sem er stífur.“


Við erum auðvitað í vitund, segir Guðni. „Það er engin stífni eða spenna í meðvitindalausum manni sem segir okkur það að spennan er í huganum og birtist svo í líkamanum því þannig stöðu myndum við okkur. Þá erum við með afstöðu. Allar afstöður eru viðhorf. Þegar maður er í afstöðu þá er maður ekki í stöðu heldur AF-stöðu. Úr jafnvægi. Það er einmitt það sem Rope Yoga gengur út á; einingu. Að vera í stöðu í augnablikinu. Lífið og veruleikinn er það sem þú finnur á hverjum tíma. Ekki það sem þú hugsar eða álítur. Allt snýst um tilfinningar og hvernig þér líður. Eini veruleikinn sem þú upplifir er augnablik fyrir augnablik. Rope Yoga gengur fyrst og fremst út á það að við endurheimtum okkur. Erum í líkamanum og finnum þessar tilfinningar. Líkaminn er í sem mestu jafnvægi þegar hann er í fullu flæði, þá er þín ástríða heitust og þar af leiðandi þín orka.“

Móðir er jörð
Í Rope Yoga setrinu er hugsað vel um verðandi mæður. Næring skipar þar stóran sess og eins og Guðni segir, móðir er jörð. Hold er mold. „Allt sem þú innbyrðir frá morgni til kvölds er eitthvað afsprengi moldar. Líkami þinn verður mold barnsins því að barnið vex í þér. Þú ert ekki að fæða eða búa til barn, barnið vex í þér. Alveg eins og jurtirnar vaxa í jörðinni. Þetta er alltaf sama hringrásin.

Önnur falleg hringrás er þegar þú elur barnið þitt á brjósti. Þá ert þú sem slík móðirin, jörðin, næringin og undirstaða tilvistarinnar, sem er þessi mold þetta hold. Þess vegna er svo mikilvægt að við skiljum að uppeldi barnsins byrjar um leið og getnaður á sér stað. Barnið byrjar þá að vaxa í þeim jarðvegi sálarinnar sem móðirin veitir. Umkringt tilfinningum sem móðirin ber. Allt áreiti hefur áhrif á barnið, hvort sem það er ást eða beiskja.“ Guðni kemur einnig inn á það að börnin okkar gera ekki það sem við segjum þeim að gera. „Þau gera einungis það sem við sýnum þeim. Ekkert annað. Góður uppalandi er bara fordæmi, ekki fyrirlesari.“

Flýtir bata eftir barnsburð  

Ef þú stundar Rope Yoga fyrir barnsburð þá ertu örugglega 100 sinnum fljótari að ná þér, staðhæfir Guðni. Eftir barnsburð getur þú svo byrjað í Rope Yoga um leið og þú getur gengið, ekki eftir neinu að bíða. Þegar móðir er búin að fæða barn þá kemst hún með Rope Yoga í vitund inn í þetta svæði. Eins og Guðni lýsir því, inn í moldina sem hefur orðið fyrir raski því nú er búið að rífa upp uppskeruna. „Á þessum tíma þarf moldin að gróa sára sinna svo hún geti farið að gefa af sér gróður. Þá er nauðsynlegt að koma áburð, athygli og blíðu inn í þetta svæði. Virkja vöðva sem hafa verið undir miklu álagi og virkja þá vitund og kærleika en ekki með einhverju ofbeldi. Geysilega mikilvægt er að vera ekki í spennunni og koma inn í þessa blíðu og næra jörðina sem er móðirin til að jörðin móðir geti haldið áfram að næra barn. Þetta er hringrás.“

Matreitt af ást og kærleik
Gló er einnig vinsæll viðkomustaður verðandi og núverandi mæðra því þar komast þær í næringu sem er eins mikið lífræn og hægt er. Að sögn Guðna er maturinn eldaður tiltölulega lítið og oft ekki neitt til þess að skemma ekki næringuna. „Það sem meira er þá erum við með starfólk sem leggur sig fram af einlægni til að búa til matinn.

 

Okkar mottó er að það kemur ekkert upp út pottunum sem við setjum ekki í þá. Við erum alltaf að gera þetta af ást og kærleik. Í raun og veru þá förum við eins nálægt því og við getum að blessa matinn með nærveru okkar. Þannig tengjum við þetta allan hringinn. Við viljum búa til umhverfi bæði hérna í Rope Yoga setrinu og Gló þar sem lífið er í sinni stærstu mynd. Afkvæmið, upphafið og endirinn, sem sagt þessi hringrás. Við horfum á þetta frá heildrænu sjónarmiði.“

Lífið er ástríða og eldur
Yoga þýðir nánd og eining. „Í okkar lífi hvort sem það er með börnunum okkar eða mökunum okkar þá verðum við að vinna að nánd. Því ef við gerum það ekki þá erum við að vinna að sundrungu .Það er mikilvægt að við lærum að skilja þetta. Með börnunum okkar höfum við stórkostlegt tækifæri til þess að vera fordæmi. Það þýðir að við verðum fyrst og fremst að vinna í okkar hjörtum til þess að geta haft áhrif á þeirra. Þessi nálgun í Rope Yoga gengur í raun út á sjö skref; athygli, ábyrgð, ásetningur, heitbinding, framgangur, innsæi og þakklæti. Þegar maður er kominn í þakklæti þá hefur maður ekki skortinn lengur.

Rope Yoga gengur út á þetta, að skilja að allt sem þú veitir athygli, vex og dafnar. Þú verður hins vegar að velja hverju þú veitir athygli því hugur þinn er eins og hundur, hann er að naga bein frá morgni til kvölds. Munurinn er einungis sá, réttir þú hundinum þínum fallegt, hreint, nýtt bein eða úldið, gamallt, ljótt bein. Hundurinn verður að hafa eitthvað að gera. Okkar nálgun gengur út á það að lífið er ástríða og eldur. Þú ert eldur og ræður því hvort þú sækir í vanmættið eða styrk. Það sem við gerum hér er að ala styrkinn. Líkamlega, andlega, tilfinningalega og svo með næringunni hérna.“


Rope Yoga setrið og Gló. Stórkostlegur staður fyrir alla einstaklinga hvort sem þeir eru ófæddir, nýfæddir eða fullorðnir.



Guðni Gunnarson er lífsráðgjafi og hefur þróað líkams- og hugræktarkerfið Rope Yoga. Hann stofnaði Rope Yoga setrið í Listhúsinu í Laugardal árið 2007. Í framhaldi af því opnaði Guðni ásamt eiginkonu sinni matsölustaðinn Gló í sama húsnæði.

Viðtal: Dagný Ingadóttir

PrintSend Page

20.09.2008
Höfnum okkur 800 sinnum á dag
Ég vissi alltaf að ég væri orka og sál en ekki hugsanir mínar.
15.07.2008
Böndin með í fríið!
Júlí er sá mánuður sem flestir taka sumarfrí og leggjast í ferðalög. Rétt er að minna Rope yoga iðke
5.05.2008
Fjögurra kvölda orkunámsskeið
Guðni Gunnarsson heldur fjögurra kvölda slökunar og orkunámsskeið &aac
5.05.2008
Rope yoga fyrir eldri borgara
Elin.is , Bæjarhrauni 2, býður nú upp á ropeyoga námsskeið

PÓSTLISTASKRÁNING

Skrá

Afskrá
 


Smelltu hér að neðan  til að skoða vefslóðir vina og samstarfs-aðilla Rope Yoga...

» Rope Yoga Setrið

» Elín Sigurðardóttir
» Hreysti
» Græni Hlekkurinn
» Þorvaldur Þorsteins.
» World Class
» Dansrækt JSB
» Fully Alive Coaching
» Kennsla.is

» Heilsuhöndinn

» Veitingahúsið Gló





 Hvað gerir RopeYoga?

 • Eflir brennslu og flæði.
 • Þróar grunnstyrk
   kviðarvöðva.
 • Eykur orku.
 • Eykur blóðflæði í kvið.
 • Eykur súrefnisupptöku.
 • Eykur upptöku
   næringarefna.
 • Eflir úrgangslosun.
 • Eykur liðleika.

 

 

    

www.hreysti.is | www.ropeyogasetrid.is | www.ropeyoga.com | www.glo.is | www.glomotion.com | gg@ropeyoga.com